Hanna rasar út
18.02.2007 20:01:13 / hannag

Til hamingju með daginn

Ég vil óska öllum konum til hamingju með daginn, konudaginn.

Ég verð að segja ykkur góða sögu af honum bróður mínum. Hann var að spyrja um muninn á anorexiu og bulemiu og ég var að skýra út muninn á þessu.  Svo bar alzheimer líka á góma þá sagði hann þessa snilldarsetningu "ég held ég sé bæði með bulemiu og alzheimer, ég ét eins og svín og gleymi síðan alltaf að æla"


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:12:12 / hannag

Pétur Ben

Núna er ég að hugsa um að vera jákvæðari en í síðustu bloggfærslu. Í gær var nefnilega skemmtilegasta kvöld lífs mín (svo ég haldi nú áfram í öfgunum). Ég fór á tónleika á Grænta hattinum með tónlistarmanninum Pétri Ben. Drengurinn er ótrúlegur. Flottur söngvari, frábær textahöfundur, ótrúlegur lagahöfundur og geeeeðveikur gítarleikar. Ég stóð bara á öndinni, enda var tilhlökkun mín mikil, ég er búin að hlusta á diskinn hans frá því að hann kom út. Sem sagt: Ég mæli með Pétri. Ef þið viljið kynna ykkur kauða þá getið þið hlustað á hann hér http://www.myspace.com/peturben

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 14:04:34 / hannag

Svartur köttur

Fór í leikhús í gærkveldi, Svartur köttur.  Þetta var leiðinlegast kvöld lífs míns og hef ég ákveðið að kaupa ekki aftur árskort í leikhús. Ráðlegg öllum frá því að sjá þennan innihaldslausa viðbjóð.  Þetta var svo lélegt og yfirgengilega ógeðslegt að ég á ekki orð.  Að lokinni sýningu klappaði ég ekki einu sinni heldur sat með krosslagðar hendur.  Ég hefði labbað út en sat fyrir miðju og vildi ekki vekja á mér athygli með eimhverjum usla.  Ég held að þetta leikrit hafi meira að segja skemmt mig aðeins.  Ég fékk t.d. martröð í nótt, (ég fæ nánast aldrei martraðir) og ég var skíthrædd af því að dóttir mína var úti að leika sér og ég vissi ekki nákvæmlega hvar hún var.  En ef ég jafna mig ekki næstu daga þá leita ég bara til sálfræðings og fæ leikfélagið til að greiða kostnaðinn með málsókn (ókei síðast setningin var djók, ekki hitt)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 22:30:41 / hannag

Hversdagsleikinn á ný

Jæja þá hátíðirnar liðnar með sínum kostum og göllum.  Blessuð jólin eru yndisleg en ég furða mig þó á sumu í kringum jólin.  T.d. skrýtna spurningaflóðinu.  Ég fæ reglulega spurninguna "Ertu búin að öllu fyrir jólin" og þessa spurningu fær maður jafnvel um miðjan desember.  Ég svara alltaf svona "Já, búin að öllu, bara eftir að skerpa á sósunni".  Einnig finnst mér skrýtin spurningin sem frægt fólk er jafnan spurt að í fjölmiðlum en það er "Ertu þú mikið jólabarn?"  Í minni æsku var það að vera mikill sama og feitur! og í minni æsku var bara eitt jólabarn, Jesús.  Ég held að þessi spurning mætti umorðast svona "Hefur þú gaman að því að baka margar sortir af smákökum, búa til heitt jólaglögg, fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum í jólaskrauti en er jafnframt fastheldin á gamal góða skrautið, föndrar þú kortin sjálfur, býrðu til piparkökuhús...." okei þetta er of löng spurning, höldum okkur við jólabarnsspurninguna.  En fyrst ég er að tala um spurningar þá langar mig að spyrja ykkur, hvaða spurning fer mest í taugarnar á ykkur?


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 13:51:50 / hannag

Bratz

Nýja Bratz dúkkan hennar dóttir minnar á fleiri nýjar gellu gallabuxur og brjóstahaldara en ég.  Mér finnst eitthvað óeðlilegt við það.  Ég er að velta fyrir mér hvort að ég sé of nísk á sjálfa mig eða hvort að efnishyggjuheimurinn er búin að éta upp sakleysi barnæskunnar.  Hvað haldið þið?


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 11:48:20 / hannag

Draumfarir

Vá, ég verð að deila því með ykkur sem mig dreymdi í nótt.  Þannig er mál með vexti að mér finnst óþolandi að raka á mér fótleggina, t.d. finnst mér mun skemmtilegra að þrífa klósett og reyta arfa.  Því verða leggirnir á mér oft loðnir á veturna (ég læt mig hafa það að raka þá á sumrin).  Samt finnst mér hárin svo ógeðsleg, svo á ég í innri femíniskri baráttu sem lýsir sér sér þannig að lítil (fer stækkandi) femínísk mús innra með mér hrópar  "ekki raka á þér leggina nema að ÞÚ viljir það, samfélagið getur ekki krafist þess að þér" (innskot. heyra fleiri svona raddir??).  En alla vega...eitthvað hafa hárin verið að fara í taugarnar á mér meira en ég gerði mér grein fyrir því að mig dreymdi að ég rakaði leggina framan á, hjó kálfan af, beygði þá pínu og þá voru þeir tveir litlir, loðnir skógarbirnir með mikið hár á bakinu en lítið á maganum.  Vá, sick maður, ég held ég raki mig fljótlega, spurning hvort að einhver geti böggað femínisku músina á meðan með stærri málum svo hún verði ekki brjáluð út af þessu.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 13:02:42 / hannag

Líkamsrækt eða body gardening

Ég slysaðist um daginn inn á líkamsræktarstöð og það var sko ekki í þeim tilgangi að svitna í takt við danstónlist ásamt fjölda fólks í nike bolum.  En alla vega...meðan ég var að bíða þarna fór ég að lesa stundaskrána.  Ég tel mig vera ágæta tungumálamanneskju en ekki gat ég skilið boffs í þessari stundaskrá.  Þetta var allt á engilsaxnesku og byrjaði helmingurinn á body eitthvað, body pumb, body building og ég veit ekki hvað, í mínu ungdæmi hét þetta nú bara leikfimi 1, 2 og 3.  Geta  líkamsræktarkennarar ekki þýtt æfingarnar yfir á íslensku?

Ég ákvað alla vega að reyna að tileinka mér þetta tungumál, þannig að í kvöld þegar ég leggst upp í sófa fyrir framan sjónvarpið þá ætla ég að kalla það body couching empowerment að því að ég eflist í letinni þegar ég ligg í sófanum.  Þegar ég fer í sund gæti ég sagt "ég er að fara í body swimming" og næst þegar ég ætla ekki að gera neitt sem verður mjög fljótlega þá gæti ég sagt "ég er að fara í holistic body  relaxation".  Vá! ég held ég sé bara að ná þessum kúltur, ég meina menningu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 20:00:51 / hannag

Ég ætlaði að blogga.....

Ég ætlaði að blogga þar sem að það var síðast gert fyrir 1/6 úr ári.  En ég gat ekki loggað mig inn fyrr en eftir dúk og disk.  Því ég mundi ekki lykilorð og notendanafn.  Fyrst reyndi ég eitt en það var víst logginnið í tölvupóstinn í vinnunni, svo reyndi ég annað en það var víst logginnið fyrir Stefaníuna, svo reyndi ég þriðja en það var logginnið fyrir WebCT, svo reyndi ég fjórða en það var víst logginnið fyrir HÍ tölvupóstinn, svo reyndi ég fimmta og það það var víst logginnið fyrir matartorg.is (þar versla ég skólamáltiðið fyrir Söru Rut), svo reyndi ég sjötta en það var víst logginnið fyrir Mentor (þar sem ég sé hvað Sara Rut á að læra heima), svo reyndi ég sjöunda en það var víst heimabankinn og við þetta krassaði á mér heilinn og nú get ég ekkert sagt nema að það þarf meira vinnsluminni í kerlu.  Næst þegar ég mæti vini á förnum vegi þá segi ég örugglega ekki "góðan dag" og svo næst "hvað er að frétta" heldur segi ég örugglega "hannag" og svo "hannabest123" æi þarna uppljóstraði ég lykilorðið í heimabankann og allt hitt.


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 00:09:01 / hannag

Litla sæta lambið og mamma þess rolluskjátann

Ég hef verið að leggja mig fram að njóta náttúrunnar á þessu fagra sumri.  Var ég meðal annars í sumarbústað í Lóni í síðustu viku og var það mjög gaman.  Fyndið var þó að það voru alltaf einhverjar rolluskjátur að hnýsast í kringum bústaðinn og fóru jafnvel upp á pallinn svo lætin urðu þónokkur.  Eitt sitt þá leit ég út um gluggann og virti fallega lambið fyrir mér.  Ullin hrein, hreyfingarnar liprar, tindrandi augu, snoppufrítt andlit, sakleysið uppmálað.  Alltí einu verður mér litið á móðurina cirka 3 vetra rolla sem þykir nú ekki svo gamalt.  Hún var með drulluga og illa hirta ull, stirð og klunnaleg, andlið blakknað og augun ekkert til að hrópa húrra yfir.  Ég hrópaði upp yfir mig "Hvernig getur lambið verið svona fallegt en rollan SVONA ljót?" En svo stirnaði ég og hrópaði enn hærra "Dætur mínar eru svo fallegar, er líka svona mikill munur á okkur???"  Ég bjóst við uppörvandi huggunarorðum frá bóndanum, hann hefði til dæmis geta sagt að ég hefði ekki tapað æskuljómanum og að augun í mér tindruðu í stjörnuskinunu en nei nei, hann glotti bara út í annað og sagði "bloggaðu um'etta"


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 22:45:07 / hannag

17 júní - dagur sölutjalda

Nú er 17. júní liðinn.  Alltaf jafn skemmtilegur fyrir börnin og gaman fyrir okkur að skemmta okkur í gegnum börnin.  Barnið brosandi út að eyrum af því að það fékk að kaupa sleikjó sem er álíka stór og klósettbursti og bragðast einsog fiskabúrasápa og kostað 700 kr.  Fullorðna fólkið kaupir fáránlega dýrt nammi og finnst það sjálfsagt þennan eina dag. Fyndið. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 18:47:01 / hannag

Orðaforði atvinnulífsins

Eins og flestir vita er ég heimavinnandi þessa mánuðina og kann ég því bara mjög vel.  Reyndar koma svona augnablik sem manni finnst það ekki mjög merkilegt að vera BARA húsmóðir en þau augnablik vara sem betur fer stutt yfir.  En þegar þessi augnablik koma þá er ég með snilldarlausn til að minnimáttarkenndin hellist ekki yfir mig.  Það er að nota orðaforða atvinnulífsins, þannig tekst mér að gera mig svolítið breiða.  Til dæmis sagði ég um daginn þegar ég fann ekki pottaleppana og Jóhann sagði að þeir væru í skúffu 4 (þeir eiga að vera í skúffu 5!!) "Bíddu við, hefur verið tekin stefnumarkandi ákvörðun varðandi pottaleppana sem ég vissi ekki um?" 

Eins fór ég á kaffihús í hádeginu um daginn og þegar Jóhann kom heim sagði ég nú bara "maður verður nú að gera svona hluti til að efla liðsheildina, mannauðurinn er það dýrmætasta í fyrirtækinu"


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 13:32:52 / hannag

Hálsinn

Ég tók eftir því um daginn að hálsinn á mér var svo þurr, ekki gott.  Þá leiddi ég hugann að því hvernig ég ber á mig krem.  Andlitskrem set ég aldrei á hálsinn á mér, ég veit ekki af hverju, ég bara fer ekki lengra en niður að kjálka.  Þegar kemur síðan að því að bera á líkamann á mér þá fer ég aldrei ofar en viðbein, veit ekki heldur af hverju.  Ég kveikti ekki á perunni með þessi gríðarlega stóru mistök fyrr en ég sá hvernig hálsinn á mér var útleikinn.  Nú set ég krem á hálsinn bæði þegar ég set á mig body lotion (á ísl. líkamskrem) og andlitskrem (á ens. facial creme).  Hálsinn á mér fær örugglega áfall við þessa skyndilegu miklu kremnotkun en ég vona að útkoman verði bara góð.  Ég skil bara ekki hvað maður er að læra í skóla öll þessi ár.  Maður veit ýmislegt um ljósttillífun, íslenska setningafræði, danskar sagnir og líf í Tansaníu eftir 10 ára grunnskólagöngu en aldrei datt nokkrum kennara í hug að segja "munið að setja næringarríkt krem á hálsinn svo að þið verðið nú fallegar í flegnum bolum í skírnarveislum barnabarnanna".  Mér finnst það ætti að stokka upp íslenska skólakerfið og kenna meira um alvöru hluti sem skipta raunverulega máli!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:03:55 / hannag

Tækja- og tæknivæðing, meira að segja í sundi

Mér finnst gerviþarfir býsna áberandi síðustu misseri.  Allir þurfa að vera að kaupa eitthvað drasl vegna einhverra gerviþarfa.  Til dæmis þótti mér pabbi minn bara nokkuð nútímavæddur þegar hann synti alltaf með sundgleraugu þegar ég var lítil stúlkukind.  En núna eru náttúrulega allir með sundgleraugu og fyrir 10 árum fóru svo sundhetturnar að bætast við.  Nú er enginn maður með mönnum nema að hann syndi með froskalappir líka.  Þar sem ég er töluverð sundmanneskja fjárfesti ég í slíkum græjum og sé ekki eftir því.  Það er hægt að synda miklu hraðar skriðsund og flugsund ef maður er með froskalappir.  Sundgleraugu og froskalappir eru þó einu græjurnar sem ég nota í sundi (auk sundbols auðvitað).  Svo er til enn þróaðra lið sem er með kút og kork og jafnvel svo græjur í lófunum til að auka mótstöðu við vatnið.  Gott og vel.  Þó var mér allri lokið um daginn þegar ég sá karl á miðjum aldri sem var með alveg nýjar hjálpargræjur, það var munnstykki sem var með röri upp á yfirborðið svo að hann gæti synt skriðsund endalaust án þess að lyfta höfðinu upp til þess að anda.  Þetta fannst mér fullmikið og ég var að hugsa um að benda honum á að hann væri svo fáránlegur að hann ætti best heima í Andabæ en ekki sundlaug Akureyrar.  Ég hætti þó við það sem þetta gæti verið nýjasta sund-trendið og þá verð ég náttúrulega að taka þátt í því eins og annari vitleysu, eða hvað?

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 20:19:37 / hannag

Gleðilegt sumar

og  takk fyrir veturinn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 20:13:33 / hannag

Hundraðþúsund kílómetrar

Við hjónin vorum að keyra frá Reykjavík um daginn og allt í einu hljóðar maðurinn minn elskulegi upp yfir sig.  Ég hélt náttúrulega að eitthvað hræðilegt hefði gerst, ímyndaði mér náttúrulega allt hið versta.  Þá segist hann hafa misst af hundraðþúsundkílómetrunum, ég hváði.  Sem sagt bílinn var að ná því að vera keyrður 100.000.  Hann hafði horft reglulega á mælinn og séð 99.857, 99.956 og líka 99.998 en gleymt að líta í nokkra kílómetra og sá svo síðan bara100.004.  Hann var geðveikt svekktur.  Til þess að hugga hann þá sagði ég honum alla leiðina norður þegar það kom sniðug tala t.d. 100.010 og 100.100 og 100.111 en honum fannst það bara pirrandi.  Hann áttaði sig ekki á því að það var töluverð vinna að sjá þessar tölur.  Að lokum benti ég honum bara að fara í tölvuna heima og velja með músinni, start og svo accessories og svo calculator og slá inn 100.000 en honum fannst ég BARA leiðinleg, skrýtið.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4